Viðskipti erlent

Nýjasta spilavítið í Atlantic borg er gjaldþrota

Nýjasta spilavítið í Atlantic borg mun lýsa sig gjaldþrota í næsta mánuði.

Spilavítið sem heitir Revel hefur aðeins starfað í tæpt ár en upphaflega voru miklar vonir bundnar við að tilkoma þess myndi létta undir bágbornum efnahag borgarinnar.

Í frétt um málið hjá AP fréttastofunni segir að með gjaldþrotinu eigi að þurrka út um tvo þriðju hluta af 1,5 milljarða dollara skuldum spilavítisins en í staðinn fái kröfuhafar einn milljarða dollara í hlutafé eftir endurskipulagningu á rekstri spilavítisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×