Viðskipti erlent

Olíuverð enn á uppleið

Mun dýrara er að fylla á bílinn nú en fyrir ári.
Mun dýrara er að fylla á bílinn nú en fyrir ári. Mynd/AFP

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað í dag, þriðja daginn í röð. Helsta ástæðan er gremja Rússa í garð Bandaríkjamanna, sem ætla að byggja upp búnað fyrir hnattrænt eldflaugavarnakerfi í Póllandi. Þá hefur verið skrúfað fyrir flutning á hráolíu við nokkrar hafnir í Rússlandi vegna stríðsátaka í Georgíu. Öll röskun á olíuflutningum hefur áhrif á verðið.

Þá spilar inn í veikning bandaríkjadals í vikunni auk þess sem fjárfestar hafa tekið að fjárfesta á ný á hrávörumarkaði eftir gengislækkun á fjármálamarkaði og ótta við frekari skell í bankaheiminum. Í ofanálag dró úr eldsneytisbirgðum á milli vikna í Bandaríkjunum í síðustu viku, að því er fram kemur í opinberum tölum sem gefnar voru út í gær. Birgðirnar drógust saman um 6,2 milljónir tunna sem er tvöfalt meira en sérfræðingar höfðu reiknað með.

Verð á framvirkum samningum á hráolíu, sem afhent verður í október, hækkaði um 2,269 dali á tunnu í dag, eða um 2,3 prósent og fór í 118,25 dali á tunnu á markaði í Bandaríkjunum. Þá fór verðið á Brent-olíu í 116,75 dali á tunnu á markaði Bretlandi.

Olíuverðið fór í rúma 147 dali á tunnu í júlí og hefur þessu samkvæmt lækkað um 21 prósent síðan þá. Verðið er engu að síður 68 prósentum hærra en á sama tíma í fyrra.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×