Viðskipti erlent

Erfiðleikarnir halda áfram

Erfiðleikar í bandarísku efnahagslífi munu halda áfram út árið og verða jafnvel meiri en áður. Bandaríkjamenn eru engu að síður jákvæðir um horfurnar næsta hálfa árið.
Erfiðleikar í bandarísku efnahagslífi munu halda áfram út árið og verða jafnvel meiri en áður. Bandaríkjamenn eru engu að síður jákvæðir um horfurnar næsta hálfa árið. Mynd/AFP

Hægja mun mjög á bandarísku efnahagslífi á seinni helmingi ársins. Margt bendir til að dýpra sé á erfiðleikunum en áður var talið. Mestu munar um áframhaldandi verðlækkun fasteigna og aukins atvinnuleysis, sem hefur ekki verið meira í sex ár, að sögn bandarískra hagfræðinga.

Bandaríska fréttaveitan Bloomberg segir hagvísa hafa lækkað um 0,7 prósent á milli mánaða í júlí sem er þrisvar sinnum meira en áður hafði verið spáð. Þetta sé vísbending um það sem koma skuli.

Martin Feldstein, hagfræðingur við Havard-háskóla, segir í samtali við Bloomberg-viðskiptafréttastöðina, að fátt bendir til að fáar vísbendingar hafi komið fram um bata í efnahagslífinu. Þvert á móti bendi flest til hins verra. Hann segist sömuleiðis vera svartsýnni nú um horfur í efnahagsmálum en fyrir ári.

Máli sínu til stuðnings benti hann á áframhaldandi lausafjárþurrð og óróleika á fjármálamörkuðum sem hafi fellt gengi húsnæðislánasjóða á borð við Fannie Mae og Freddie Mac. Þá hafi gengi hlutabréfa falli og gengi bandaríkjadals verið lágt.

Bloomberg segir góðu fréttirnar í svartnættinu hins vegar þær að fleiri Bandaríkjamenn telji nú líkur á bata í efnahagslífinu á næstu sex mánuðum en fyrir ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×