Viðskipti erlent

Hagvöxtur í Bandaíkjunum langt undir spám

Hús til sölu í Bandaríkjunum. Samdráttur á fasteignamarkaði þar í landi leiðir minni hagvöxt á fyrsta fjórðungi ársins.
Hús til sölu í Bandaríkjunum. Samdráttur á fasteignamarkaði þar í landi leiðir minni hagvöxt á fyrsta fjórðungi ársins. Mynd/AFP

Hagvöxtur jókst um 1,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum hagstofu Bandaríkjanna. Hagvöxtur hefur ekki verið jafn lítill í fjögur ár. Fréttirnar ollu því að gengi bandaríkjadals lækkaði á markaði og hefur aldrei verið jafn lágur gagnvart evru.

Niðurstaðan er talsvert undir væntingum enda spáðu flestir því að hagvöxtur yrði í kringum tvö prósent vestanhafs á tímabilinu.

Að sögn hagstofunnar jókst landsframleiðsla um 1,3 prósent á fjórðungnum en það er 1,2 prósentustiga samdráttur frá fjórða ársfjórðungi í fyrra.

Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna segir samdrátt á fasteignamarkaði vestanhafs skýra samdráttinn að langmestu leyti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×