Viðskipti erlent

Hagnaður Pepsi jókst um 16 prósent

Gosdrykkir frá Pepsi.
Gosdrykkir frá Pepsi.

Bandaríski gosdrykkjarisinn PepsiCo skilaði 1,1 milljarða dala hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þetta jafngildir rúmlega 71 milljarði íslenskra króna, sem er 16 prósentum meira en félagið skilaði á sama tíma fyrir ári og nokkuð yfir væntingum greinenda. Sala á Frito Lay snakki á stóran hlut af auknum hagnaði fyrirtækisins.

Pepsi, sem er annar stærsti gosdrykkjaframleiðandin í heimi á eftir Coca Cola. Til samanburðar við afkomuna nú nam hagnaður Pepsi á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs 947 milljónum dala, sem er tíu milljörðum krónum minna en nú.

Hagnaðurinn nú nemur 65 sentum á hlut samanborið við 56 sent á hlut á sama tíma í fyrra. Þetta er talsvert yfir væntingum greinenda á Wall Street sem reiknuðu með því að hagnaðurinn myndi nema 61 senti á hlut.

Á meðal vara Pepsi er gosdrykkur undir nafni fyrirtækisins, orkudrykkurinn Gatorade og snakk undir merkjum Lay. Gosdrykkjasala hefur dregist nokkuð saman í norðanverðri Ameríku en sala á snakki aukist að sama skapi sem skilaði sér í 16 prósenta betri afkomu nú en í fyrra, að sögn fréttastofu Reuters.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×