Viðskipti erlent

Stýrivaxtahækkun vofir yfir Bretlandi

Miklar líkur eru taldar á því að stýrivextir verði hækkaðir um 25 punkta hið minnsta í Bretlandi á næsta vaxtaákvörðunarfundi Englandsbanka í byrjun maí. Verðbólga mælist nú 3,1 prósent og hefur ekki verið meiri í áratug. Auk þessa stendur gengi breska pundsins í hámarki gagnvart bandaríkjadal en það hefur ekki verið hærra í 26 ár.

Englandsbanki ákvað fyrr í þessum mánuði að halda stýrivöxtum óbreyttum og vísaði til þess að verðbólga hefði lækkað lítillega í byrjun árs. Í ljósi þess að verðbólga jókst um 50 punkta á milli mánaða í mars hafa greinendur sagt að mikil þörf sé á stýrivaxtahækkun í landinu til að draga úr einkaneyslu og halda í við verðbólgudrauginn.

Aukin verðbólga kom peningamálastjórn Englandsbanka mjög á óvart og varð Mervyn King, seðlabankastjóri, að gera stjórnvöldum grein fyrir hækkuninni.

Greinendur útiloka ekki að bankinn hækki stýrivexti frekar eða um allt að 50 punkta.

Forsvarsmenn fyrirtækja taka í sama streng. Þeir vara hins vegar við 50 punkta hækkun og segja beinlínis hættulegt að hækka vextina svo mikið í einu. Slíkt geti haft slæm langtímaáhrif á afkomu fyrirtækja, þeirra sögn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×