Viðskipti erlent

Rússar vilja Alitalia

Merki Alitalia.
Merki Alitalia. Mynd/AFP

Rússneska flugfélagið Aeroflot, sem er að stærstum hlut í eigu rússneska ríkisins, er sagt ætla að leggja fram kauptilboð í 39,9 prósenta hlut ítalska ríkisins í ítalska flugfélaginu Alitalia. Ítalski bankinn Unicredit er sagður standa að kaupunum ásamt Aeroflot.

Fjármálaráðherra Ítalíu hefur staðfest að þrír aðilar etji kappi um 49 prósent í flugfélaginu. Ellefu félög lýstu fyrst yfir áhuga þegar hluturinn var sagður til sölu. Væntanlegir kaupendur hafa frest fram til 16 apríl næstkomandi til að leggja fram tilboð í félagið.

Sömuleiðis er talið líklegt að bandaríski fjárfestingasjóðurinn Texas Pacific og ítalska flugfélagið Air One hafi áhuga á bréfum í félaginu.

Franska flugfélagið Air France-KLM, sem á fyrir lítinn hlut í Alitalia, lýsti yfir áhuga á kaupum á félaginu í fyrra. Forstjóri flugfélagsins sagði hins vegar að stjórnendur Alitatlia yrðu að laga fjárhagsstöðu félagsins áður en af viðskiptum verði.

Alitalia hefur átt við viðvarandi hallarekstur að stríða og tapaði jafnvirði tæpra 36 milljarða íslenskra króna á síðasta ári.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×