Stj.mál
46 47 48 49 50 51 52 53 54 … 187 ›
Sautján vilja á lista Samfylkingar Sautján gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningar í vor, tíu karlmenn og sjö konur. Innlent 21.1.2006 17:29
Mikil spenna í prófkjöri Sjálfstæðismanna 306 höfðu greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi klukkan tólf. Mikil barátta stendur um hver skipar annað sæti listans fjórir stefna að því marki og hefur flokksmönnum í Kópavogi fjölgað um nær þriðjung síðustu daga. Innlent 21.1.2006 11:48
Fimmtán í framboði Fimmtán taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar en kjörstaðir opnuðu klukkan níu. Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri gefur einn kost á sér í fyrsta sætið en fjögur keppa um annað sætið á listanum. Innlent 21.1.2006 09:26
Kosið um sameiningu fjögurra sveitarfélaga Íbúar Húsavíkur, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps kjósa í dag um sameiningu sveitarfélaganna. Íbúar þessara fjögurra sveitarfélaga samþykktu sameiningu sjö sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum síðasta haust en þá var sameiningu hafnað í þremur sveitarfélögum og því féll tillagan. Innlent 21.1.2006 08:55
Trúnaði aflétt af skjölum ESA um RÚV-frumvarpið Trúnaði hefur verið aflétt af skjölum sem tengjast umfjöllun Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, um frumvarp sem menntamálaráðherra lagði fram á Alþingi um Ríkisútvarpið á síðasta vorþingi. Innlent 20.1.2006 17:15
Kjaradómslögin samþykkt Kjaradómslögin voru samþykkt á Alþingi fyrir stundu. Tuttugu og sex greiddu atkvæði með lögunum en sautján sátu hjá. Með lögunum er úrskurður Kjaradóms frá því rétt fyrir áramót felldur úr gildi og laun þingmanna þannig hækkuð um 2,5 prósent, en ekki 8 prósent eins og Kjaradómur ákvað. Innlent 20.1.2006 16:11
Sammála um að hætta viðræðum Iðnaðarráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórinn á Akureyri hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um að ekki séu lengur forsendur fyrir frekari viðræðum um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun. Innlent 20.1.2006 12:29
Vill veiðibann á loðnuna Loðnuveiðar á að stöðva og setja á veiðibann strax, sagði Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, við upphaf þingfundar. Hann sagði ástand loðnustofnsins grafalvarlegt og vildi að hætt yrði að veiða það litla sem finndist við loðnuleit. Innlent 20.1.2006 10:44
Tíu sérfræðingar á fund nefndar vegna kjaradómsmáls Að minnsta kosti tíu sérfræðingar á ýmsum sviðum hafa verið kallaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um kjaradómsfrumvarpið, sem hefst klukkan hálfníu. Hefur Þingfundi, sem átti að hefjast klukkan ellefu, verið frestað til hálftvö vegna þess. Innlent 19.1.2006 07:40
Furðar sig á að skýrslur sé teknar af börnum í dómshúsi Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingar, lýsti á Alþingi í dag yfir furðu sinni á því að meirihluti skýrslna sem tekinn sé af börnum, sem grunur leikur á að hafi verið beitt kynferðisofbeldi, fari fram í dómshúsi en ekki Barnahúsi. Innlent 18.1.2006 17:03
Mikill áhugi fanga að dvelja í Hegningarhúsinu Það skortir síður en svo áhuga hjá föngum að dvelja í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Þetta sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í umræðum um undirbúning nýrrar fangelsisbyggingar á Alþingi á fjórða tímanum. Einnig kom fram í máli ráðherrans að hann gerði ráð fyrir að undanþágan sem Hegningarhúsið hefur verið á verði framlengd, en hún rennur út innan skamms. Innlent 18.1.2006 15:52
Steingrími óskað skjóts bata af þingheimi Sólveg Pétursdóttir, forseti Alþingis, sendi Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, óskir um skjótan bata, við upphaf þingfundar á Alþingi í dag. Innlent 17.1.2006 17:02
Forval hjá VG á Akureyri 28. janúar Forval hjá Vinstrihreyfingunni - grænu framboði á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningar fer fram laugardaginn 28. janúar. Fram kemur í tilkynningu frá kjörstjórn að kosið verði um sex efstu sætin á framboðslista VG á Akureyri fyrir kosningarnar. Innlent 17.1.2006 14:43
Bjóða fram saman undir nafninu Í-listinn Samfylkingin, Vinstri - grænir og Frjálslyndir og óháðir hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista til bæjarstjórnar Ísafjarðar í vor undir nafninu Í-listinn Ísafjarðarbæ. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta. Prófkjör vegna framboðsins verður haldið laugardaginn 25. febrúar. Innlent 17.1.2006 14:06
Kosið um sameiningu sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu Kosið verður um sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu á laugardaginn kemur, en íbúar þeirra samþykktu sameiningu sjö sveitarfélaga í sýslunni í sameiningarkosningum í október síðastliðnum. Sveitarfélögin sem um ræðir eru Húsavíkurbær, Kelduneshreppur, Öxarfjarðarhreppur og Raufarhafnarhreppur en íbúar þeirra eru rúmlega þrjú þúsund. Innlent 17.1.2006 13:19
Lagt til að Hótel Valhöll verði rifin Sérfræðingar, sem forsætisráðherra fól að taka út ástand húsnæðis Hótel Valhallar á Þingvöllum, leggja til að það verði rifið, annaðhvort allt eða að hluta til. Ríkisstjórnin féllst í morgun á að ráðist yrði í þarfalýsinu um framtíðarskipan Valhallar og efnt til opinnar samkeppni um nýja hönnun. Innlent 17.1.2006 12:12
Alcan gerir ekki ráð fyrir rafmagni frá Norðlingaölduveitu Álfyrirtækið Alcan, sem rekur álverið í Straumsvík, gerilr ekki ráð fyrir rafmagni frá Norðlingaölduveitu þótt álverið í Staumsvík verði stækkað. Halldór Ásgrímsson forsætisráðhera gerir ekki ráð fyrir að virkjað verði þar á næstu árum. Innlent 17.1.2006 12:01
Kallaði sjálfur eftir aðstoð Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, slasaðist alvarlega í bílveltu á ellefta tímanum í gærkvöldi og liggur á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. Hann er ekki í lífshættu. Innlent 17.1.2006 11:59
Búið skipa fulltrúa í matarverðsnefnd Forsætisráðherra hefur skipað fulltrúa í nefnd sem fjalla á um helsty orsakaþætti hás matvælaverðs á Íslandi og gera tillögur sem miða að því að færa matvælaverð nær því sem gengur og gerist í helstu nágrannaríkjunum. Innlent 17.1.2006 11:09
Hlynur Hallsson kallaður inn á þing fyrir Steingrím Þingflokkur Vinstri - grænna kom saman í morgun í kjölfar fréttar um að formaður flokksins hefði slasast í gærkvöldi. Hlynur Hallsson hefur verið kallaður inn sem varamaður hans á þingi. Innlent 17.1.2006 10:01
Alþingi kemur aftur saman Alþingi kemur saman til fundar í dag eftir 38 daga fundahlé í kringum jól og áramót. Fyrsta málið sem verður tekið fyrir á þingfundi sem hefst klukkan hálftvö verður frumvarp um að draga til baka launahækkanir Kjaradóms og ákvarða mönnum þess í stað tveggja og hálfs prósents launahækkun frá og með næstu mánaðamótum. Innlent 17.1.2006 07:45
Tuttugu gefa kost á sér Tuttugu manns gefa kost á sér í prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, en prófkjörið verður ellefta febrúar. Innlent 17.1.2006 06:28
Vinnufriður til að smíða fjölmiðlalög Vinnufriður ætti að vera kominn á til að smíða fjölmiðlalög. Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna ákváðu í morgun að fallast á málamiðlunartillögu menntamálaráðherra um hvernig staðið skuli að smíði nýs frumvarps. Innlent 16.1.2006 19:59
Halldór átti fund með eigendum DV Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra átti fund með eigendum DV fyrir einhverju síðan þar sem hann tjáði þeim að ef hann væri eigandi að svona blaði þá myndi hann ekki sofa vært á næturnar, og vísaði þar í fréttaflutning blaðsins og framsetningu frétta. Innlent 16.1.2006 16:32
Markmið Alþingis hafa ekki gengið eftir Upphaflegar væntingar og markmið Alþingis með aðild Íslands að "Samningnum um líffræðilega fjölbreytni" hafa ekki gengið eftir. Þetta fullyrðir Ríkisendurskoðun í tilkynningu sem send var fjölmiðlum síðdegis. Innlent 16.1.2006 15:57
Samstarf í stað nefndar Ekkert verður af því að menntamálaráðherra skipi nýja nefnd til að semja lagafrumvarp um fjölmiðla. Stjórnarandstaðan neitaði að tilnefna fulltrúa í nefndina en samþykkti að tilnefna fulltrúa sem vinna með lögfræðingum sem menntamálaráðherra hefur fengið til að semja frumvarpið. Innlent 16.1.2006 14:06
Ráða ráðum sínum gegn Norðlingaölduveitu Stjórnarandstæðingar komu saman til fundar á tólfta tímanum til að ræða sameiginlegan málflutning gegn því að ráðist yrði í framkvæmdir við Norðlingaölduveitu. Innlent 16.1.2006 12:06
Fundað vegna mála leikskólakennara í dag og á miðvikudag Það ræðst á fundum samráðshóps um kjaramál leikskólakennara í dag eða á miðvikudag hvort hópurinn kemst að sameiginlegri niðurstöðu um tillögur að lausn í kjaramálum leikskólakennara. Innlent 16.1.2006 10:54
Bæjarstjóri sækist ekki eftir sæti á lista Sjálfstæðismanna í Garðabæ Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa ekki ákveðið hvort núverandi bæjarstjóri, verði bæjarstjóraefni flokksins vegna sveitastjórnarkosninga í vor. Prófkjör flokksins þar í bæ er haldið í dag í fyrsta sinn í tæpa þrjá áratugi og er bæjarstjórinn ekki í framboði. Innlent 14.1.2006 12:17
Býst við fjörugum umræðum á launamálaráðstefnu Formaður launanefndar sveitarfélaganna segir miklar væntingar til launamálaráðstefnu sem haldin verið næsta föstudag en að þau deilumál sem uppi eru í kjaramálum verði ekki leyst strax þann dag. Hann býst við fjörugum umræðum á ráðstefnunni þar sem fjárhagsleg staða sveitarfélaganna sé mjög mismunandi. Innlent 13.1.2006 22:57
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent