Kauphöllin
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 78 ›
Kauphöllin kallar eftir nýrri umgjörð utan um erlent eignarhald í sjávarútvegi Forsvarsmenn íslensku Kauphallarinnar mæla fyrir breytingum á umgjörð utan um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegsfyrirtækjum, sem núna dregur úr gagnsæi og girðir í reynd nánast fyrir aðkomu slíkra fjárfesta, og vilja að regluverkið um erlent eignarhald verði svipað og gildir um flugrekstur hér á landi. Núverandi fyrirkomulag hefur meðal annars valdið því að íslensku sjávarútvegsfélögin eru ekki gjaldgeng í alþjóðlegar hlutabréfavísitölur ólíkt öðrum stórum skráðum félögum. Innherji 11.1.2024 10:55
Spá töluverðum rekstrarbata hjá VÍS Greiningafyrirtækið Jakobsson Capital reiknar með töluverðum rekstrarbata hjá VÍS á árinu 2024. „Það er gert ráð fyrir lægra kostnaðarhlutfalli en töluverður kostnaður var í ár vegna sameiningar og annarra einskiptisliða. Sömuleiðis ætti toppi hagsveiflunnar að verða náð. Allt útlit er fyrir að það hægist á verðbólgunni sem mun hjálpa til við að lækka tjónahlutfallið. Iðgjöld dagsins í dag eru til að tryggja tjón framtíðar,“ segir í verðmati. Innherji 10.1.2024 14:41
Velur Alvotech sem eina bestu fjárfestinguna í hlutabréfum á árinu 2024 Alvotech er í „einstakri“ stöðu til að verða leiðandi í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjum, að sögn bandarísks hlutabréfagreinenda, sem hefur útnefnt íslenska félagið sem einn besta fjárfestingakostinn á hlutabréfamarkaði á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech hefur verið mikilli siglingu, upp um meira en þriðjung á innan við mánuði, en í vikunni mæta fulltrúar bandaríska Lyfjaeftirlitsins til landsins til gera úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins og mun niðurstaða hennar ráða miklu um framhaldið. Innherji 8.1.2024 15:31
Lífeyrissjóðir stækka við hlut sinn í Ísfélaginu eftir skráningu á markað Tveir lífeyrissjóðir, sem voru meðal umsvifamestu þátttakenda í almennu hlutafjárútboði Ísfélagsins undir lok síðasta árs, hafa stækkað talsvert við stöðu sína í fyrirtækinu með kaupum á eftirmarkaði síðustu vikur fyrir samtals vel á annan milljarð króna. Hlutabréfaverð Ísfélagsins hefur haldist nánast óbreytt frá fyrsta degi viðskipta þegar félagið var skráð á markað fyrir einum mánuði. Innherji 8.1.2024 10:47
Tilboð JBT kom hlutabréfamarkaðnum á flug Hlutabréfamarkaðurinn, sem er góðri siglingu, þurfti afgerandi jákvæð skilaboð til að komast úr hjólförum sem hann var fastur í en umtalsverðar lækkanir höfðu einkennt gengisþróunina lengst af á árinu sem var að líða. Þau fékk hann með yfirtökutilboði frá JBT í Marel fyrir skemmstu og jákvæðum tóni í kjaraviðræðum. Frá þeim tíma hefur mikil stemning ríkt á markaðnum. Innherji 5.1.2024 17:49
JBT fær tveggja vikna frest Marel hefur verið upplýst um að fjármálaeftirlit Seðlabankans hafi veitt JBT tveggja vikna framlengingu á fresti til þess að birta lokaákvörðun um hvort það hyggist gera yfirtökutilboð í Marel. Viðskipti innlent 5.1.2024 15:56
Útleiguhlutfall Eikar nokkuð lágt en verðmat er 45 prósent yfir markaðvirði Útleiguhlutfall Eikar er nokkuð lágt, að mati greinanda sem metur gengi fasteignafélagsins 45 prósent yfir markaðsvirði. Þriðji ársfjórðungur var „örlítið erfiðari í útleigu“ heldur en fyrstu tveir fjórðungar ársins. Innherji 3.1.2024 16:16
Hlutabréf enn hátt verðlögð miðað við hagnað og áhættulausa kröfu Þetta er í síðasta skipti sem CAPE-hlutfallið er birt byggt á Úrvalsvísitölunni OMXI10 en frá og með 1. janúar 2024 mun hún bera heitið OMXI15 og innihalda fimmtán félög í stað tíu. Hagsveifluleiðrétt hlutfall verðs á móti raunhagnaði (CAPE) fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI10 endaði síðasta ár í 28,1 samanborið við 29,1 árið áður. Innherji 3.1.2024 09:35
SKEL byggir upp stöðu í Samkaupum í aðdraganda skráningar á markað Fjárfestingafélagið SKEL, sem á Orkuna og Heimkaup, hefur gengið frá kaupum á um fimm prósenta eignarhlut í smásölufyrirtækinu Samkaupum. Forstjóri SKEL segir yfirlýst áform Samkaupa um að fara með félagið á markað gera það að áhugaverðum fjárfestingarkosti. Innherji 2.1.2024 13:33
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir meira en tíu milljarða á árinu Þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum undir lok síðasta mánaðar þegar fréttir af mögulegu yfirtökutilboði í Marel bárust þá var ekkert lát á áframhaldandi útflæði fjármagns úr hlutabréfasjóðum. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins hafa fjárfestar minnkað stöðu sína í slíkum sjóðum umtalsvert meira en allt árið 2022 en í tilfelli skuldabréfasjóða hefur útflæðið nærri þrefaldast. Innherji 29.12.2023 11:19
Yfirtaka á Marel gæti „heft“ uppfærslu á markaðnum hjá vísitölufyrirtækjum Verði af yfirtöku bandaríska fyrirtækisins JBT á Marel er hætt við því að það myndi „hefta“ frekari hækkun á gæðaflokkun íslenska markaðarins hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn forstjóra Kauphallarinnar, enda sé ólíklegt að þau myndu telja íslensku kauphöllina vera heimamarkað sameinaðs félags. Stjórnendur Kauphallarinnar hafa haft væntingar um að markaðurinn gæti fengið uppfærslu í flokk nýmarkaðsríkja hjá MSCI á árinu 2024. Innherji 27.12.2023 12:29
Uppbygging í ólgusjó á hlutabréfamarkaði Lengst af ársins 2023 var íslenskur hlutabréfamarkaður í ólgusjó. Þar skipti mestu máli hátt vaxtastig, knúið áfram af þrálátri verðbólgu og háum verðbólguvæntingum, sem var dragbítur á markaðinn. Þá bárust fréttir af stærstu skráðu félögunum sem fóru illa í fjárfesta. Áhyggjur af köldu efnahagslífi og heitum kjarasamningunum á næsta ári vofðu yfir markaðnum og alvarlegt stríðsástand í heiminum bætti ekki úr skák. Umræðan 27.12.2023 10:58
Nokkur óskuldbindandi tilboð gerð í TM Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist Kviku í hlutabréf TM, bæði í félagið í heild og að hluta. Fjórum aðilum hefur verið boðið að halda áfram í söluferlinu. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:53
Kvika á mikið inni, segir greinandi Kvika á mikið inni, að sögn hlutabréfagreinenda sem metur bankann um 23 prósentum yfir markaðsvirði, en gengi bréfa bankans hefur hækkað um fimmtung á einum mánuði. „Það er von á hraustlegri arðgreiðslu eða endurkaupum,“ segir í verðmati um væntanlega sölu á TM. Innherji 21.12.2023 12:22
Að birta fjárhagsupplýsingar á undan ársreikningi Einn mikilvægasti tímapunkturinn í fjárfestatengslum skráðra félaga er þegar þau birta fjárhagsupplýsingar fyrir árið. Fjárfestar bíða í ofvæni eftir að sjá rekstrarniðurstöðu ársins dregna saman, með umfjöllun um helstu áhrifaþætti og jafnvel horfur á komandi misserum. Hér á landi hefur yfirleitt verið horft á birtingu fjárhagsupplýsinga og ársreikning sem sama hlutinn. Þannig er það samt ekki erlendis. Umræðan 21.12.2023 10:10
Veðsetja alla hluti sína í VÍS og Kaldalóni Fjárfestingafélagið Skel hefur veðsett alla hluti sína í félögunum VÍS og Kaldalóni, helstu skráðu félögunum í eignasafni Skeljar. Forstjórinn segir um hefðbundna fjármögnun að ræða. Viðskipti innlent 20.12.2023 16:10
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. Innherji 18.12.2023 11:19
Samruni Marels og JBT skynsamlegur ef skuldir aukast ekki verulega Greinendur bandaríska fjárfestingarbankans William Blair telja að Marel og John Bean Technologies (JBT) séu nú nær því að hefja samrunaviðræður og um möguleika á „verulegum“ samlegðaráhrifum ef samningar nást. Innherji 15.12.2023 13:47
Rekstur Eimskips „mjög sterkur“ og metur félagið hærra en markaðurinn Uppgjör Eimskips fyrir þriðja ársfjórðung er enn frekari staðfesting á því að grunnrekstur skipafélagsins er „orðinn mjög sterkur“, segir í verðmati. Það skiptir miklu máli þar sem flutningsverð eru komin á eðlilegar slóðir. Þekkt er að flutningsverð voru afar há í Covid-19 heimsfaraldrinum og því var arðsemi fyrirtækja í þeim rekstri góð á þeim tíma. Innherji 14.12.2023 16:15
Sannfærður um „verulega“ samlegð af mögulegri sameiningu Marel og JBT Uppfærð viljayfirlýsing um mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel, sem er hækkað um átta prósent frá fyrra boði, gerir ráð fyrir sambærilegu gengi og erlendir greinendur eru að verðmeta íslenska félagið á um þessar mundir. Forstjóri JBT segist sannfærður um að mögulegur samruni muni hafa í för með sér „verulega“ samlegð fyrir bæði félög sem hluthafar ættu að njóta góðs af en hlutabréfaverð Marels hefur rokið upp í fyrstu viðskiptum á markaði í morgun. Innherji 14.12.2023 10:57
Hækka hugsanlegt tilboð um 22 milljarða króna Marel hefur borist uppfærð óskuldbindandi viljayfirlýsing frá John Bean Technologies Corporation, JBT, varðandi mögulegt tilboð í öll hlutabréf í félaginu. JBT lýsir yfir vilja til að greiða mögulega átta prósent meira fyrir hvern hlut í félaginu. Það gerir um 22 milljörðum króna meira en í upphaflegri yfirlýsingu. Viðskipti innlent 14.12.2023 07:45
Guðjón hættir sem forstjóri í apríl Guðjón Auðunsson, forstjóri fasteignafélagsins Reita, hefur tilkynnt stjórn félagsins að hann muni láta af störfum sem forstjóri félagsins 1. apríl næstkomandi. Hættir hann í framhaldi af aðalfundi félagsins sem fram fer 6. mars. Viðskipti innlent 14.12.2023 07:24
Gengi Marel „sigið niður á við“ eftir mikinn sprett í kjölfar yfirtökutilboðs Gengi Marels hefur farið lækkandi að undanförnu í tiltölulega lítilli veltu eftir að hafa hækkað verulega eftir að óskuldbindandi tilboð barst frá erlendum keppinaut í félagið sem stjórn þess hafnaði. Forstöðumaður í eignastýringu segir að á meðan engin tíðindi berist af yfirtökumálum eða rekstri félagsins sé líklegt að verðþróun Marel ráðist að mestu af ytri aðstæðum og stemningu á markaði. Innherji 13.12.2023 14:30
Fyrsti áfangi Blikastaðalands gerir ráð fyrir byggingu um 1.500 íbúða Skipulagslýsing að deiluskipulagi fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalands, stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins og er í eigu Arion, hefur verið afgreidd en samkvæmt því er fyrirhugað að reisa þar allt að um 1.500 íbúðir. Framkvæmdir við verkefnið færast því núna nær í tíma en greinendur og fjárfestar hafa sagt að verðmæti landsins sé að líkindum verulega undirverðlagt í bókum bankans. Innherji 12.12.2023 11:45
Árni tekur stoltur við sem forstjóri Marel Árni Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri Marel. Hann hefur gengt starfinu tímabundið undanfarnar vikur eftir að Árni Oddur Þórðarson lauk störfum hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 11.12.2023 17:26
Verðmat Arion lækkar um átta prósent en vaxtastigið bítur í bankana Verðmat Arion banka lækkar um átta prósent en gert er ráð fyrir lægri vaxtatekjum en áður og hærri ávöxtunarkrafa lækkar líka matið. Greinandi segir að vaxtastigið, en stýrivextir hafa hækkað umtalsvert í því skyni að sporna við verðbólgu, sé farið að „bíta bankana“. Innherji 11.12.2023 15:38
Lífeyrissjóður verslunarmanna umsvifamesti fjárfestirinn í útboði Ísfélagsins Lífeyrissjóður verslunarmanna keypti tæplega fimmtung allra þeirra bréfa sem voru seld í nýafstöðnu hlutafjárútboði Ísfélagsins fyrir samtals um 3,5 milljarða. Þrír af stærstu lífeyrissjóðum landsins fengu hins vegar ekki úthlutað neinum bréfum en hlutabréfaverð Ísfélagsins, sem var skráð í Kauphöllina í morgun, hefur rokið upp um meira en tuttugu prósent miðað við útboðsgengið til almennra fjárfesta. Innherji 8.12.2023 12:07
Guðbjörg hringdi bjöllunni Viðskipti með hlutabréf Ísfélags hf. á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hófust í morgun. Guðbjörg Matthíasdóttir, eigandi Ísfélags, hringdi af því tilefni Kauphallarbjöllunni um borð í Sigurði VE í Vestmannaeyjahöfn í morgun og naut hún þar aðstoð barnabarna sinna, þeim Magnúsi og Sigurði. Viðskipti innlent 8.12.2023 11:50
Beiðni Árna Odds um framlengingu á greiðslustöðvun hafnað Beiðni Árna Odds Þórðarsonar, fyrrverandi forstjóra Marels til tíu ára og einn stærsti hluthafinn í Eyri Invest, um heimild til framlengingar á greiðslustöðvun hefur verið hafnað af dómstólum, samkvæmt upplýsingum Innherja, en Landsbankinn hafði mótmælt því að hann fengi að vera áfram í slíku skjóli gagnvart kröfuhöfum. Óvissa er núna um mögulegar fullnustuaðgerðir kröfuhafa á hendur Árna Oddi en hlutur hans í fjárfestingafélaginu Eyri er meðal annars veðsettur gagnvart láni frá Landsbankanum. Innherji 5.12.2023 18:14
Lífeyrissjóðir með augun á enn meiri fjárfestingum erlendis á komandi ári Margir af stærri lífeyrissjóðum landsins setja stefnuna á að auka áfram nokkuð við hlutfall erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum á komandi ári samhliða því að nýjar breytingar taka þá gildi sem hækkar hámarksvægi gjaldeyriseigna hjá sjóðunum. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni flestir hverjir ekki auka vægi sitt í innlendum hlutabréfum á næstunni þrátt fyrir að sá eignaflokkur hafi lækkað mikið síðustu ár. Innherji 4.12.2023 13:52