Fréttir af flugi
40 41 42 43 44 45 46 47 48 … 144 ›
Steig í ógáti á bremsu svo flugvélin hafnaði á hvolfi við Blönduósflugvöll Flugmaður í aftursæti heimasmíðaðrar flugvélar steig í ógáti og of harkalega á bremsu sem varð til þess að vélin steyptist yfir sig og hafnaði á hvolfi við æfingar á grasi utan flugbrautar á Blönduósflugvelli 4. maí síðastliðinn. Innlent 1.1.2022 13:01
Borgin tekur tvær sneiðar til viðbótar af flugvellinum Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur gerir ráð fyrir að tvær sneiðar verði skornar af Reykjavíkurflugvelli á næstu þremur árum og að vellinum verði svo endanlega lokað eftir áratug, árið 2032. Innlent 30.12.2021 22:22
Færði smituðum farþega mat og jólaskraut í einangrun: „Það er ýmislegt sem gerist þegar fólk er á ferðalögum“ Ragnhildur Eiríksdóttir, flugfreyja hjá Icelandair, sem fjallað var um í dag að hefði hjálpað hinni bandarísku Marisu Fotieo, sem fékk jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi um borð í vél Icelandair hingað til lands, segist aðeins hafa verið að gera það sem hún hefði viljað að yrði gert fyrir sig ef hún hefði verið í sömu stöðu. Innlent 30.12.2021 20:18
Texasbúi réttur eigandi lénsins Iceland Express Fyrirtækið Sólvellir, sem tengt er Ferðaskrifstofu Íslands, kvartaði nýlega til Neytendastofu yfir notkun erlends aðila á léninu icelandexpress.is. Sólvellir á sjálft vörumerkið Iceland Express og bar fyrir sig að erlendi aðilinn hefði engin tengsl við merkið. Viðskipti innlent 30.12.2021 17:44
Nýtt flugfélag í samkeppni við Play og Icelandair Norsk flugmálayfirvöld veittu í gær nýja lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic flugrekstrarleyfi og telst það nú vera fullgilt flugfélag. Viðskipti erlent 30.12.2021 09:51
Einangraði sig inni á klósetti eftir jákvætt heimapróf í miðju flugi til Íslands Hún var afar sérstök, flugferð bandaríska kennarans Marisa Fotieo til Íslands skömmu fyrir jól. Í miðju flugi tók hún Covid-19 heimapróf sem reyndist jákvætt og ákvað hún því að einangra sig inn á klósetti flugvélarinnar til þess að freista þess að vernda aðra farþega. Innlent 30.12.2021 08:50
„Það er dálítið í land en þetta er allt að koma“ Farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað töluvert á milli ára. Ferðamálastjóri býst við að fjöldi ferðamanna nálgist eðlilegt horf á næsta ári. Enn sé þó mikil óvissa um þróunina vegna faraldursins. Innlent 28.12.2021 22:02
Undirrituðu samning um viðbyggingu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli Isavia Innanlandsflugvellir og Byggingafélagið Hyrna undirrituðu í dag samning um smíði viðbyggingar við flugstöðina á Akureyrarflugvelli. Samningsupphæðin fyrir verkið er 810,5 milljónir króna. Viðskipti innlent 28.12.2021 16:08
Boeing 737 Max flugvélar fá brátt að fljúga aftur í Indónesíu Þrjú ár eru liðin síðan Boeing 737 Max flugvél hrapaði fyrir utan strendur Java á Indónesíu með 189 innanborðs. Síðan þá hafa vélarnar ekki fengið að fljúga í Indónesíu en það mun brátt breytast. Erlent 28.12.2021 10:15
Fyrsta rafmagnsflugvélin í sögu íslensks flugs komin til landsins Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga kom til landsins með skipi í dag, innpökkuð í vagni. Þessari litlu tveggja sæta flugvél er ætlað að kynna Íslendingum rafvæðingu flugsins og er vonast til að hún verði komin í flugkennslu með vorinu. Innlent 27.12.2021 21:31
Samningar loks náðst um langþráða viðbyggingu við flugstöðina Isavia hefur samið við byggingafélagið Hyrnu á Akureyri um viðbætur og breytingar á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við fréttastofu en samningurinn verður undirritaður í flugstöðinni á morgun. Viðskipti innlent 27.12.2021 13:01
Ómíkron sett þúsundir flugferða í uppnám um jólin Flugfélög víða um heim hafa aflýst flugferðum um jólin, með tilheyrandi uppnámi fyrir ferðamenn yfir hátíðarnar. Yfir 1.500 flugferðum milli landa hefur verið aflýst í dag. Erlent 26.12.2021 11:37
Aflýsa þúsundum flugferða yfir hátíðarnar Ferðamenn víðsvegar um heiminn eru margir hverjir í vandræðum en yfir 4.500 flugferðum hefur verið aflýst yfir hátíðarnar. Ástæðan er mönnunarvandi vegna faraldurs kórónuveirunnar. Erlent 25.12.2021 08:09
Milljarða tjón vegna saknæmrar háttsemi dómara Íslenska ríkið og bandaríska flugvélaleigan ALC hafa verið dæmt til að greiða Isavia 2,5 milljarða króna í tengslum við deilu Isavia og ALC um yfirráð yfir flugvél flugfélagsins sáluga Wow air. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að dómari við Héraðsdóm Reykjanes hafi komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni. Viðskipti innlent 23.12.2021 13:31
Gert ráð fyrir forgangsbraut milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins Alþjóðlega hönnunar- og skipulagsstofan KCAP, með höfuðstöðvar í Sviss, varð hlutskörpust í samkeppni sem Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, hélt um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll til ársins 2050. Viðskipti innlent 22.12.2021 07:30
Munu fljúga tvisvar í viku til Vestmannaeyja Samkomulag hefur náðst milli flugfélagsins Ernis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um að Ernir muni sinna áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja tvisvar í viku. Flogið verður á mánudögum og föstudögum. Innlent 21.12.2021 14:58
Icelandair í nýjum litum Þotur flugfélagsins Icelandair munu taka miklum útlitsbreytingum á komandi misserum. Von er á fyrstu þotunni í nýja búningnum í janúar á næsta ári. Þoturnar verða í öllum regnbogans litum en blái liturinn hverfur þó ekki á bak og burt. Viðskipti innlent 18.12.2021 13:42
Icelandair flýgur til Norður-Karólínu Icelandair hefur bætt áfangastaðnum Raleigh-Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum við leiðarkerfi sitt. Flogið verður þangað fjórum sinnum í viku næsta sumar á tímabilinu 12. maí til 30. október. Viðskipti innlent 16.12.2021 16:34
Forstjóri PLAY: „Við höfum séð að það er bara verðið sem skiptir máli“ Bandaríkjaflug PLAY, sem hefst í vor, gjörbreytir viðskiptalíkani íslenska flugfélagsins og leiðir til þess að umsvifin aukast gríðarlega. Birgir Jónsson, forstjóri PLAY, segir félagið í góðu færi til að sækja markaðshlutdeild á tengimarkaðinum yfir Norður-Atlantshafið með lágum verðum. Verðið sé það sem skipti mestu máli þegar upp er staðið. Innherji 16.12.2021 11:27
Play hefur miðasölu vestur um haf Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til bandarísku borganna Boston og Washington D.C. Fyrsta flugið til bandarísku höfuðborgarinnar Washington verður 20. apríl næstkomandi og til Boston 11. maí. Viðskipti innlent 16.12.2021 11:04
Síðasta A380-þotan afhent eigenda Síðasta Airbus A380 hefur nú verið smíðuð og var afhent nýjum eigendum í dag. Það er flugfélagið Emirates með höfuðstöðvar í Sameinuðu arabísku furstadæmanna sem er eigandi vélarinnar, en félagið er eigandi um helmings þeirra A380-þota sem hafa verið framleiddar. Viðskipti innlent 16.12.2021 10:27
Ríkisábyrgðin hefur verið mikilvægur öryggisventill að mati Icelandair Ríkisábyrgð á lánalínu til Icelandair hefur verið mikilvægur öryggisventill fyrir íslenska flugfélagið þrátt fyrir að félagið hafi ekki þurft að draga á línuna. Þetta kemur fram í svari flugfélagsins við fyrirspurn Innherja um hvort það hafi þurft eða muni hugsanlega þurfa að draga á lánalínuna áður en ríkisábyrgðin rennur út næsta haust. Innherji 14.12.2021 12:01
Loðnutekjur af Íslandsmiðum redda grænlenskum flugvelli Væntanlegur loðnugróði Grænlendinga af Íslandsmiðum veldur því að íbúar stærsta bæjar Suður-Grænlands fá loksins nýjan flugvöll. Þar var tíðindunum fagnað með söng og flugeldasýningu á dögunum. Viðskipti innlent 13.12.2021 20:40
Vilja fella niður ríkisábyrgð á lánalínum Icelandair Félag atvinnurekenda leggur til að heimildin til að veita Icelandair Group sjálfskuldaraábyrgð ríkissjóðs á lánum verði felld út úr fjárlagafrumvarpinu. Þetta kemur fram í umsögn félagsins. Innherji 10.12.2021 13:30
Handtekinn fyrir að leka myndbandi sem sýndi herþotu hrapa örskömmu eftir flugtak Brak F-35 herþotu breska flughersins sem hrapaði í Miðjarðarhafið örfáum andartökum eftir flugtak af flugmóðurskipinu HMS Queen Elizabeth hefur verið endurheimt. Sjóliði um borð hefur verið handtekinn fyrir að leka myndefni sem sýndi þotuna hrapa. Erlent 9.12.2021 23:30
Flugvélar Play með besta nýja útlit ársins Útlit flugvéla flugfélagsins Play hlaut verðlaun TheDesignAir fyrir besta nýja útlit ársins í flugheiminum. Viðskipti innlent 9.12.2021 19:04
Búa sig undir að flugumferð raskist ef gýs í Grímsvötnum Flugmálayfirvöld búa sig undir að eldgos í Grímsvötnum geti valdið verulegum truflunum á flugumferð, bæði hérlendis og víðar í Evrópu. Eldstöðin er komin á appelsínugula viðvörun gagnvart alþjóðaflugi, sem táknar vaxandi líkur á gosi. Innlent 6.12.2021 20:40
Icelandair á enn langt í land Icelandair flutti um 170 þúsund farþega í innanlands- og millilandaflugi í nóvember. Áfram sést mikil aukning milli ára en um 13 þúsund flugu með flugfélaginu á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 6.12.2021 19:04
Icelandair harmar slysið á Keflavíkurflugvelli Icelandair harmar slys sem átti sér stað á laugardag þegar eldri maður féll á flugstæði á Keflavíkurflugvelli á leið úr flugvél félagsins. Icelandair segir að öllum verkferlum hafi verið fylgt í aðdraganda óhappsins en farþegarnir voru að koma frá Orlando í Flórída. Innlent 6.12.2021 17:54
Eldstöðin Grímsvötn sett á appelsínugula viðvörun Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig vegna Grímsvatna úr gulum lit í appelsíngulan lit fyrir alþjóðflug, sem táknar vaxandi líkur á eldgosi. Þetta var gert klukkan níu í morgun eftir jarðskjálftahrinu í eldstöðinni fyrr um morguninn. Innlent 6.12.2021 10:33