Glamour

Naomi Campell situr fyrir í Puma-línu Rihönna

Ritstjórn skrifar
Naomi Campbell er auðvitað flottust í Puma-línunni.
Naomi Campbell er auðvitað flottust í Puma-línunni.
Búist er við því að ný lína Rihönnu fyrir Puma mæti í verslanir í næsta mánuði. Mikil eftirvænting er fyrir línunni enda var hún sýnd á tískuvikunni í New York í febrúar við góðar undirtektir. 

Til þess að kynna línuna hefur birst myndaþáttur í Vogue þar sem sjá má Naomi Campbell sitja fyrir í fötunum. 

Myndirnar eru einstaklega flottar og ofurfyrirsætan auðvitað stórglæsileg. 






×