Fótbolti

Martraðarkvöld hjá Arsenal í Zagreb | Sjáðu mörkin og rauða spjaldið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúmenski dómarinn Ovidiu Haţegan rekur Oliver Giroud af velli.
Rúmenski dómarinn Ovidiu Haţegan rekur Oliver Giroud af velli. Vísir/Getty
Arsenal gerði ekki góða ferð til Króatíu en Skytturnar töpuðu 2-1 fyrir Dinamo Zagreb í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Josip Pivarić kom króatísku meisturunum yfir á 24. mínútu og hagur heimamanna vænkaðist enn frekar á 40. mínútu þegar Oliver Giroud, framherji Arsenal, fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Staðan var 1-0 í hálfleik en á 58. mínútu kom Junior Fernandes Dinamo Zagreb í 2-0 með skalla eftir hornspyrnu.

Varamaðurinn Theo Walcott hleypti spennu í leikinn þegar hann minnkaði muninn á 79. mínútu en nær komust lærisveinar Arsene Wenger ekki.

Vonbrigði fyrir Arsenal en frábær úrslit fyrir Dinamo Zagreb sem er með þrjú stig í F-riðli líkt og Bayern München sem vann 0-3 sigur á Olympiacos í kvöld.

1-0, Pivaric Giroud fær rautt 2-0, Fernandes 2-1, Walcott



Fleiri fréttir

Sjá meira


×