Kauphöllin
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 78 ›
Eyrir áformar að styrkja stöðuna með tólf milljarða innspýtingu frá hluthöfum Stjórnendur og ráðgjafar Eyris Invest eiga nú í samtölum við hluthafa fjárfestingafélagsins um að leggja því til umtalsvert nýtt hlutafé í því skyni að treysta fjárhagsstöðuna eftir mikið verðfall á stórri hlutabréfaeign þess í Marel. Landsbankinn gerði í lok síðasta mánaðar veðkall í rúmlega eins prósenta hlut Árna Odds Þórðarson, þáverandi forstjóri Marels, í Eyri Invest í gegnum samnefnt eignarhaldsfélag hans eftir að það uppfyllti ekki lengur skilmála í lánasamningi við bankann. Innherji 10.11.2023 11:57
Útlit fyrir að það sé „loksins farið að birta til hjá Marel“ Kaflaskil hafa orðið í rekstri Marels og framlegðarhlutfall fyrirtækisins, sem er samt enn lágt í sögulegu samhengi, virðist loks vera að ná sér á strik eftir „viðstöðulausa lækkun í mörg ár.“ Útlit er fyrir að það sé „loksins að birta til hjá Marel“, segir hlutabréfagreinandi sem hefur hækkað lítillega verðmat sitt á félaginu. Innherji 10.11.2023 07:59
Marel lækkaði um rúm sex prósent Gengi bréfa í Marel lækkaði um 6,42 prósent í Kauphöllinni í dag. Í gærkvöldi var greint frá því að forstjóri félagsins væri hættur eftir tíu ára starf. Viðskipti innlent 8.11.2023 17:59
Sýn skiptir miðlum upp í tvær rekstrareiningar Ný rekstrareining sem ber heitið „Vefmiðlar og útvarp“ hefur verið mynduð hjá Sýn í kjölfar kaupanna á Já.is. Þar undir fellur rekstur Vísis, tengdra vefsíðna, rekstur Bylgjunnar og annarra útvarpsstöðva. Stöð 2 verður sjálfstæð rekstrareining við breytingarnar. Viðskipti innlent 8.11.2023 17:04
Nýr forstjóri með raunhæfari rekstrarmarkmið væri gott skref fyrir Marel Það gæti verið heilladrjúgt fyrir gengisþróun Marels að fá nýjan forstjóra sem setur rekstrarmarkmið sem félagið getur náð. Við það öðlast aftur fjárfestar trú á félaginu, segir greinandi í samtali við Innherja. Innherji 8.11.2023 16:07
Marel lækkar um sex prósent í Hollandi eftir að Arion leysti til sín bréf Árna Odds Marel hefur lækkað um ríflega sex prósent í Kauphöllinni í Hollandi í morgun, en um þrjú prósent í íslensku kauphöllinni, eftir að forstjóri fyrirtækisins lét af störfum í kjölfar þess að Arion banki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest, kjölfestufjárfesti í Marel. Innherji 8.11.2023 10:33
Arion banki tjáir sig ekki um mál Árna Odds Engar skýringar fást á því frá Arion banka hvers vegna bankinn leysti til sín hlutabréf Árna Odds Þórðarsonar sem lét í gær af störfum sem forstjóri Marels. Þetta kemur fram í svörum frá bankanum. Viðskipti innlent 8.11.2023 10:09
Árni Oddur hættir hjá Marel vegna deilna við Arion Árni Oddur Þórðarson er hættur sem forstjóri Marel eftir tíu ára starf. Það gerði hann vegna réttaróvissu eftir að Arionbanki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest, stórum hluthafa í Marel. Viðskipti innlent 7.11.2023 19:10
Fjárfestar með „augun á baksýnisspeglinum“ og sjá ekki tækifæri Kviku Fjárfestar eru með „augun á baksýnisspeglinum“ gagnvart Kviku, þar sem þeir horfa framhjá tækifærum til sóknar á bankamarkaði eftir mikla fjárfestingu í fjártæknilausnum, og hratt lækkandi markaðsvirði bankans endurspeglar nú „engan veginn“ undirliggjandi virði í eignum félagsins, að mati vogunarsjóðsstjóra sem hefur byggt upp stöðu í bankanum. Þá segir hann Sýn vera „eitt undirverðlagðasta félagið“ á markaði um þessar mundir og metur mögulegt virði auglýsingamiðla fyrirtækisins á um eða yfir fimm milljarða. Innherji 6.11.2023 18:33
Samskipti skráðra félaga við hluthafa: Vandrataður vegur Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi góðra og hreinskiptinna samtala á milli stjórnar félags og hluthafa þess. Slík samtöl hafa á undanförnum árum orðið snar þáttur í eigendastefnum fjárfesta, þá sér í lagi stofnanafjárfesta sem kjósa í auknum mæli að beita sér sem virkir hluthafar, auk þess að gagnast stjórnum félaga við að draga fram og öðlast skilning á sjónarmiðum ólíkra hluthafa. Umræðan 6.11.2023 09:00
Lífeyrissjóðir „heppilegir sökudólgar“ en eiga ekki að stöðva lækkanir á markaði Lífeyrissjóðir eru oft gagnrýndir fyrir framgöngu sína á hlutabréfamarkaði þegar illa árar. Stjórnendur þeirra segja að þeir séu „heppilegir sökudólgar“. Það séu hátt í 100 milljarðar í stýringu hjá verðbréfasjóðum sem ætti að „duga ágætlega“ til skoðanaskipta. Það sé ekki í verkahring lífeyrissjóða að stöðva lækkanir á markaði. Innherji 4.11.2023 11:00
Skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta afkomu Kviku af starfseminni í Bretlandi Erfiðar aðstæður á mörkuðum halda áfram að setja mark sitt á afkomu Kviku og minnkuðu tekjur af kjarnarekstri um liðlega 14 prósent á þriðja fjórðungi en framvirka bókin hjá bankanum er „miklu minni“ en áður sem hefur talsverð neikvæð áhrif á tekjumyndun, að sögn bankastjórans. Framlegðin af starfsemi Ortus í Bretlandi, sem hefur valdið vonbrigðum frá kaupunum í ársbyrjun 2022, ætti að halda áfram að batna með væntingum um hækkandi vaxtamun og verið sé að skoða „ýmsar leiðir“ til að bæta fjármögnunarkostnað félagsins. Innherji 3.11.2023 11:49
Verðlagning margra skráðra félaga „með því lægra sem sést hefur í langan tíma“ Verðlagning margra fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni eru með því lægra sem sést hefur í langan tíma, að sögn vogunarsjóðsstjóra, en frá ársbyrjun 2022 hefur ávöxtun hlutabréfamarkaðarins að teknu tilliti til verðbólgu verið neikvæð um meira en fimmtíu prósent. Verðkennitölur banka gefi til kynna að horfur í rekstri fari versnandi, sem standist illa skoðun, og þá séu horfur í smásölu bjartari eftir erfiða átján mánuði og „verðlagning þar farin að verða áhugaverð.“ Innherji 2.11.2023 18:20
Marel ætti að fara í hlutafjáraukningu til að grynnka á miklum skuldum Hlutabréfaverð Marels rauk upp í byrjun vikunnar eftir að greinendur ING hækkuðu talsvert verðmat sitt á félaginu en þrátt fyrir að uppgjör þriðja fjórðungs hafi verið undir væntingum telja þeir jákvæð teikn á lofti í rekstrinum sem endurspeglist meðal annars í minnkandi kostnaðargrunni. Að sögn hollenska bankans væri skynsamlegt fyrir Marel að ráðast í hlutafjáraukningu í því skyni að minnka óhóflega skuldsetningu félagsins. Innherji 1.11.2023 18:15
Gagnrýnir lífeyrissjóði og segir að þeir hafi „frekar ýtt undir vandann“ á markaði Aðstæður á innlendum fjármálamörkuðum á árinu hafa verið „með því verra sem sést hefur“ frá fjármálahruninu 2008 þar sem meðal annars smæð markaðarins, lítill sem enginn seljanleiki og mikið útflæði fjármagns hefur valdið „ákveðnum markaðsbresti“ og ýkt sveiflur á gengi félaga í báðar áttir, að sögn vogunarsjóðstjóra. Hann gagnrýnir lífeyrissjóðina, sem eiga liðlega helming af öllum skráðum hlutabréfum, fyrir sinnuleysi gagnvart hlutabréfamarkaðinum með því að beita sér lítið við þessar krefjandi aðstæður og „frekar ýtt undir vandann.“ Innherji 1.11.2023 15:48
Verðmat Icelandair næstum tvöfalt hærra en markaðsverð eftir gengislækkun Markaðsvirði Icelandair hefur fallið um 35 prósent frá síðasta verðmati Jakobsson Capital og þar til nýtt var birt fyrir helgi. Nú verðmetur greinandi flugfélagið 89 prósent hærra en markaðurinn. Verð á þotueldsneyti hefur lækkað um tíu prósent frá því að Icelandair gaf út afkomuviðvörun sína um miðjan september vegna hærra verðs á olíu, segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 30.10.2023 18:48
„Við erum ekki að taka meiri áhættu,“ er sagt um hraustlegan vöxt Varðar Iðgjöld Varðar, tryggingafélags Arion banka, jukust um 18,6 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Stjórnendur segja að vöxturinn stafi ekki af aukinni áhættutöku heldur sé verið að dreifa áhættu með því að stækka á meðal fyrirtækja. Áður hafi áherslan verið á einstaklinga. Innherji 27.10.2023 15:48
Erlend fjármálafyrirtæki ná aukinni markaðshlutdeild í gjaldeyrislánum Uppgjör Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi var undir væntingum greinenda. Bankastjóri bankans upplýsti að erlend fjármálafyrirtæki hafi aukið við markaðshlutdeild sína í útlánum í erlendum gjaldeyri til fyrirtækja hérlendis í ljósi hærri kostnaðar hjá íslenskum bönkum. Hann taldi að lífeyrissjóðir myndu auka við markaðshlutdeild sína í verðtryggðum húsnæðislánum. Bankinn hafi umtalsvert fé aflögu til að greiða til fjárfesta eða nýta í vöxt sem annars dragi úr arðsemi hans. Innherji 27.10.2023 13:41
Arion banki skilaði 6,1 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi Arion banki hagnaðist um 6.131 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2023, í samanburði við 5.008 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum. Viðskipti innlent 26.10.2023 17:36
Erlendir greinendur lækka verðmat á Marel en Berenberg mælir með kaupum Erlendir greinendur hafa lækkað verðmat sitt á Marel eftir uppgjör þriðja ársfjórðungs sem olli mörgum vonbrigðum en sumir benda á að minnkandi kostnaður gefi til kynna að undirliggjandi rekstur sé að batna. Hlutabréfaverð Marels, sem er komið á sömu slóðir og snemma árs 2018, hefur fallið um sjö prósent á síðustu tveimur viðskiptadögum. Innherji 25.10.2023 14:30
Framlegð Ísfélagsins minnkar lítillega í aðdraganda skráningar á markað Eftir metafkomu í fyrra er útlit fyrir að framlegðarhlutfall í rekstri útgerðarrisans Ísfélagsins muni minnka nokkuð á þessu ári samhliða erfiðari aðstæðum en EBITDA-hagnaður félagsins var samt yfir fjórir milljarðar króna á fyrri árshelmingi. Ísfélagið, sem varð til við sameiningu Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma um miðjan júní, boðaði lífeyrissjóði og aðra fjárfesta til kynningarfunda í liðinni viku en félagið stefnir að skráningu í Kauphöllina undir lok ársins. Innherji 25.10.2023 09:45
Markaðurinn verið í „fýlu í langan tíma“ og vanmetinn um 37 prósent Að meðaltali eru félögin sem Jakobsson Capital fylgir vanmetin um 36,5 prósent. „Markaðurinn er búinn að vera í gríðarlegri fýlu í langan tíma,“ segir í hlutabréfagreiningu. „Ólíklegt er að Seðlabankinn hækki vexti mikið meira“ en ósennilegt þykir að hlutabréfamarkaðurinn „taki mikið við sér áður en vextir lækka á ný.“ Innherji 24.10.2023 12:04
Afkoman undir væntingum en Marel skilaði „framúrskarandi“ sjóðstreymi Afkoma Marels á þriðja fjórðungi var nokkuð undir væntingum greinenda á alla helstu mælikvarða en á móti benda stjórnendur á „framúrskarandi“ sjóðstreymi, sem var yfir 60 milljónir evra, og lægri kostnaðargrunn eftir hagræðingaraðgerðir. Hlutfall pantana á móti tekjum stóð í stað frá fyrri fjórðungi en horfur eru taldar fara „batnandi“ samhliða bættu ytra umhverfi. Fjármagnskostnaður Marels hefur meira en þrefaldast á fyrstu níu mánuðum ársins frá sama tíma í fyrra. Innherji 23.10.2023 23:14
Seldi í Hampiðjunni á níu prósenta „afslætti“ skömmu eftir að sölubann rann út Aðeins rétt ríflega tveimur mánuðum eftir að sölubann á liðlega sjö prósenta hlut FSN Capital í Hampiðjunni rann út, sem það fékk sem greiðslu fyrir sölu á Mørenot fyrr á árinu, hefur norski fjárfestingasjóðurinn selt um tvo þriðju af stöðu sinni til hóps íslenskra fjárfesta fyrir vel á fjórða milljarð. Væntingar um að sjóðurinn sé enn með talsvert framboð af bréfum til sölu gæti haldi niðri gengi bréfa Hampiðjunnar. Innherji 23.10.2023 12:37
Útlit fyrir að EBIT-hlutfall Marels verði undir tíu prósent á krefjandi fjórðungi Gangi spár greinenda eftir verður samdráttur á flestum sviðum Marels á milli ára þegar félagið birtir uppgjör sitt fyrir þriðja fjórðung eftir lokun markaða í dag og að framlegðarhlutfallið muni vera um rétt tæplega tíu prósent. Hlutabréfaverð Marels hefur fallið um liðlega fjórðung á innan við tveimur mánuðum og ekki verið lægra frá því snemma árs 2018. Innherji 23.10.2023 09:49
Síldarvinnslan betur í stakk búin fyrir loðnubrest en drekkri horfur eru í útgerð Engin loðnuúthlutun hefði haft mun verri afleiðingar fyrir Síldarvinnsluna fyrir tveimur til þremur árum. Útgerðin hefur dreift áhættu í rekstrinum með því að auka bolfiskveiðar, segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 20.10.2023 15:27
Greinandi Citi hækkar verðmat sitt á Alvotech um hundrað prósent Greinandi bandaríska fjárfestingabankans Citi, sem hefur mælt með sölu á bréfum í Alvotech frá því um haustið 2022, hefur nú uppfært verðmat sitt á íslenska líftæknilyfjafélaginu um hundrað prósent og ráðleggur fjárfestum að halda í bréfin. Hann er vongóður um að Alvotech verði fyrsta fyrirtækið til að komast inn á Bandaríkjamarkað með hliðstæðu við Humira, mesta selda lyf í heimi, í háum styrk og með útskiptileika. Innherji 20.10.2023 11:59
Heildartekjur Icelandair aldrei verið meiri á einum ársfjórðungi Heildartekjur Icelandair voru 74,7 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi. Í tilkynningu frá félaginu segir að það sé það séu mestu heildartekjur félagsins frá upphafi, en þær jukust um sautján prósent frá því í fyrra. Viðskipti innlent 19.10.2023 17:39
Forstjóri Haga hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðslu Teikn eru á lofti um að hægt hefur á verðhækkunum á innfluttri dagvöru, segir forstjóri Haga, en hann hefur áhyggjur af „sterkum hækkunartakti“ á innlendri framleiðsluvöru. Innherji 19.10.2023 15:01
Þurfum að læra af vandræðum Breta sem kæfðu hlutabréfamarkaðinn Við þurfum að læra af vandræðum Breta sem gengur illa að fjármagn vöxt fyrirtækja þar í landi því það er búið að kæfa innlenda hlutabréfamarkaðinn. Í draumaheimi gætu íslenskir lífeyrissjóðir eflaust fjárfest meira og minna erlendis og á móti flæddi erlent fjármagn inn í íslenskt atvinnulíf. Því miður er það ekki þannig. Litla Ísland lendir yfirleitt neðarlega á forgangslista erlendra fjárfesta þótt það séu vissulega jákvæð teikn á lofti í þeim efnum, segir framkvæmdastjóri hjá Kauphöllinni. Innherji 18.10.2023 17:33