Glamour

Glitrandi varalitur Naomi Campbell fer á sölu í dag

Ritstjórn skrifar
Varalitur Naomi er frá nýjustu líku förðunarmeistarans Pat McGrath
Varalitur Naomi er frá nýjustu líku förðunarmeistarans Pat McGrath Mynd/Getty
Naomi Campbell vakti mikla athygli á VMA hátíðinni á sunnudagskvöldið, þá sérstaklega fyrir glitrandi varirnar sínar. Vörurnar sem hún notaði eru frá förðunarmeistaranum Pat McGrath, sem hefur farðað á öllum helstu tískusýningum seinustu árum og er líklega allra þekktasti og virtasti förðunarfræðingur í heimi, hefur verið að gefa út sínar eigin vörur í afar takmörkuðu upplagi.

Varalitirnir fara á sölu í dag, 30.ágúst, á heimasíðu Pat McGrath klukkan 16.00. Það mun reynast erfitt að koma höndunum yfir einn slíkan pakka enda hafa vörurnar hennar selst upp á innan við mínútu. Þeir sem kannast við brjálæðið í kringum Kylie Lip Kit varalitina, þá verður þetta svipað nema í fjórða veldi. 

Hægt verður að kaupa pakka af varalitum sem innihalda tvo liti, glæran gloss og tvær tegundir af glimmeri til þess að setja yfir varalitina.












×