Glamour

Eftirminnilegu Óskarskjólarnir

Ritstjórn skrifar
Lupita Nyong'o í Prada 2014. Gullfallegur
Lupita Nyong'o í Prada 2014. Gullfallegur
Það er ekki hægt að neita því að rauði dregillinn fyrir Óskarsverðlaunin er næstum því jafn skemmtilegur og athöfnin sjálf. Næstum því.

Það hafa allir skoðun á kjólunum og jú smóking eða jakkafötum strákana líka. Hver er í hverjum og hvað klæðir hvern.

Ritstjórn Glamour bíður spennt eftir Óskarsverðlaununum sem afhend verða aðra nótt, og tók að því tilefni saman nokkra kjóla sem voru mikið ræddir og því eftirminnilegir. 

Fylgist með Glamour og Óskarsverðlaununum á Snapchat GlamourIceland. 

Michelle WIlliams í Vera Wang 2006
Gwyneth Paltrow í bleika Ralph Lauren kjólnum árið 1999
Julia Roberts í Valentino 2001
Björk okkar í Marjan Pejoski 2001
Halle Berry í Elie Saab 2001, þegar hún vann fyrst þeldökkra kvenna Óskar fyrir aðalhlutverk.
Ekki sá fallegasti, en umtalaður kjóll Jennifer Lopez frá Valentino 2003
Angelina Jolie í Versace kjólnum með klaufinni umtöluðu 2012.
Einn af okkar uppáhalds, Gwyneth Paltrow aftur, en nú í Tom Ford árið 2012.





×