Glamour

Rauði liturinn vinsæll á rauða dreglinum

Ritstjórn skrifar
Brooklyn og Victoria Beckham
Brooklyn og Victoria Beckham
Glamour Woman of The Year verðlaunin fóru fram í gær. Þar eru ýmsar konur úr heimi tísku, íþrótta, kvikmynda, tónlist og fleira verðlaunaðar fyrir vel unnin störf.

Grínistinn og leikkonan Amy Schumer opnaði hátíðina og breska söngkonan Ellie Goulding tók lagið.

Meðal þeirra sem fengu afhend verðlaun voru Reese Witherspoon, Caitlyn Jenner, kvennalandslið Bandaríkjanna í knattspyrnu og Victoria Beckham, en sú síðastnefnda mætti ásamt elsta syni sínum Brooklyn Beckham sem fékk þann heiður að afhenda mömmu sinni verðlaunin.

Rauði liturinn var áberandi á rauða dreglinum og meira að segja Jared Leto skartaði rauðu hári.





Reese Witherspoon
Amy Schumer og Selena Gomez
Vera Wang
Jared Leto
Ellie Goulding
Karlie Kloss
Tavi Gevinson
Caitlyn Jenner
Ekki missa af nóvemberblaði Glamour - komið í allar helstu verslanir!

Tryggðu þér áskrift hér eða í síma 512 5550!







×