Glamour

Fjölbreytni á forsíðum glanstímarita aldrei verið meiri

Ritstjórn skrifar
Samkvæmt nýrri úttekt hefur fjölbreytni forsíðufyrirsæta hjá helstu glanstímaritum heims aldrei verið meiri. Seinustu tvö ár vöktu mikil vonbrigði en loksins virðist tískuheimurinn vera að vakna til lífsins og líta á eigin barm. 

Í úttektinni er horft á bandarískar útgáfur Allure, Cosmopolitan, Elle, Glamour, Harper's Bazaar, InStyle, Nylon, Teen Vogue, Vogue og W.

Árin 2014 og 2015 voru 27 af 136 forsíðum með fyrirsætum af lituðum kynþáttum. Þetta árið voru hinsvegar 52 forsíðufyrirsætum af lituðum kynþáttum af 147. Þrátt fyrir að þetta sé ekkert sérstaklega stórt skref þá er þetta hækkun úr 19.7% upp í 35.3%.






×