Netanjahú með eldræðu
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, gagnrýndi Sameinuðu þjóðirnar harðlega þegar hann ávarpaði allsherjarþing þeirra í dag. Þúsundir mótmæltu við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York áður en Netanjahú flutti eldræðu sína en nokkrir fulltrúar gengu út áður en hann tók til máls.