Körfubolti

Bein út­sending: Spáin og upp­hitun fyrir Bónus-deildirnar

Sindri Sverrisson skrifar
Valsmenn urðu Íslandsmeistarar karla á síðustu leiktíð og Keflavíkurkonur unnu þrefalt.
Valsmenn urðu Íslandsmeistarar karla á síðustu leiktíð og Keflavíkurkonur unnu þrefalt. Vísir/Anton og Vísir/Hulda Margrét

Það kemur í ljós í hádeginu, í beinni útsendingu á Vísi, hvaða liðum er spáð sigri í Bónus-deildunum í körfubolta í vetur.

Kynningarfundur fyrir efstu deildir karla og kvenna í körfubolta, sem nú heita Bónus-deildirnar, hefst á Grand Hótel klukkan 12:15. Beina útsendingu má sjá hér að neðan.

Á fundinum verða meðal annars kynntar spárnar fyrir Bónus-deildirnar, bæði frá fulltrúum félaganna og eins frá fjölmiðlamönnum.

Þá verða einnig kynntar spárnar fyrir 1. deild karla og kvenna.

Segja má að körfuboltatímabilið hefjist á morgun í Blue-höllinni í Keflavík, í árlegum leikjum Íslands- og bikarmeistara síðasta tímabils. Keppni í Bónus-deild kvenna hefst svo næsta þriðjudag og keppni í Bónus-deild karla hefst næstkomandi fimmtudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×