Poulis vonsvikinn 30. júní 2005 00:01 "
Ég vill taka það fram að litarháttur eða þjóðerni hafa aldrei haft áhrif á hvernig ég stilli upp mínu liði," sagði vonsvikinn Tony Pulis í samtali við breska fjölmiðla í gær, daginn eftir að hafa verið rekinn frá enska knattspyrnufélaginu Stoke City, sem er að mestu í eigu íslenska fjárfesta. Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke, sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að stjórnin hefði tekið þá ákvörðun um að láta Pulis fara vegna tregðu hans við að leita á erlenda markaði eftir nýjum leikmönnum. Pulis gefur lítið fyrir þær ástæður. "Ég hef unnið með erlendum leikmönnum á tíma mínum hér hjá Stoke sem hafa verið að spila í mínu liði. Þetta snýst ekki um að kaupa til félagsins erlenda leikmenn, þetta snýst um að kaupa til félagsins góða leikmenn," sagði Pulis, sem mun þó fá mánaðarlegan launatékka frá Stoke næsta árið þar sem hann hafði skrifað undir nýjan samning við félagið í lok apríl sl. Leikmenn og aðdáendur Stoke eru furðu lostnir yfir starfsaðferðum íslensku stjórnarinnar og kvaðst Gerry Taggart, fyrrverandi leikmaður Leicester en núverandi leikmaður Stoke, að hann væri í sjokki yfir fréttunum. "Þetta er hryllingur. Þetta sýnir einfaldlega að það er aldrei hægt að vita hvað er í gangi á bakvið tjöldin," sagði Taggart.Það er því ljóst að það er ekki auðvelt starf sem bíður Johan Boskamp, nýjum knattspyrnustjóra félagsins sem skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í gær. Boskamp þessi stjórnaði meðal annars Anderlecht til þriggja meistaratitla í Belgíu fyrir rúmum áratug áður hann tók við Genk og gerði þá að bikarmeisturum í landinu. Þar þjálfaði hann meðal annars Þórð Guðjónsson, núverandi leikmann Stoke, með góðum árangri.Fyrsta verk Boskamp verður að vinna traust leikmanna og áhangenda liðsins, en að sögn fjölmiðla í Stoke gæti reynst afar erfitt þar sem ekki beri á öðru en að stjórn félagsins sé að skiptast í tvær fylkingar, þá íslensku og þá ensku, þar sem flestir sem að félaginu koma séu á bandi þeirra síðarnefndu. Stjórnarmaðurinn Peter Coates, sá hinn sami og gerði Íslendingunum tilboð í félagið í fyrradag upp á 500 milljónir sem var umsvifalaust hafnað," kveðst óttast um framtíð félagsins í kjölfarið á atburðum síðustu daga. "Að reka Pulis var einhver furðulegasta ákvörðun sem ég hef vitað til í enskri fótboltasögu. Ég hef miklar áhyggjur af því hvert þetta félag er að stefna," sagði hann.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira