Heiðar ætlar að standa sig 27. júní 2005 00:01 "
Mér líst mjög vel á að fara aftur í úrvalsdeildina. Fulham er gott félag sem hefur metnað til þess að vera ofarlega í deildinni. Ég ætla að sýna og sanna að ég get staðið mig í úrvalsdeildinni," sagði Heiðar Helguson, sem er einn af þremur íslenskum leikmönnum í ensku úrvalsdeilinni, en fyrir eru Eiður Smári Guðjohnsen hjá Chelsea og Hermann Hreiðarsson hjá Charlton. Heiðar lék með liði Watford í rúm fimm ár, en hann gekk til liðs við félagið frá Lilleström í Noregi fyrir eina og hálfa milljón punda. Heiðar var í miklum metum hjá stuðningsmönnum Watford, en miklar umræður fara þar fram um hversu frábærlega Heiðar reyndist félaginu á ferli sínum hjá því. "Tíminn hjá Watford var virkilega ánægjulegur. Ég kom til þeirra eftir að hafa spilað í Noregi, og hoppaði beint inn í leik á heimavelli á móti Liverpool og náði að skora." Heiðar átti gott tímabil á síðustu leiktíð þó félaginu hafi ekki gengið nægilega vel í deildinni. Hann náði að skora tuttugu mörk í deildinni og var án efa besti leikmaður liðsins. Heiðar telur að hann geti bætt sig með því að leika í ensku úrvalsdeildinni. "Ég get bætt mig sem knattspyrnumaður og er viss um að gera það hjá Fulham, ef ég verð að spila þar í byrjunarliði eins og ég ætla mér að gera. Það verður gaman að glíma við alla þá frábæru varnarmenn sem eru í úrvalsdeildinni." Fulham þurfti að greiða rúmlega eina milljón punda fyrir Heiðar, en nokkur úrvalsdeildarfélög föluðust eftir að fá hann til sín. "Ray Lewington, sem var þjálfari hjá Watford, er kominn til starfa hjá Fulham og það var óneitanlega kostur að vera með mann þar sem maður þekkir af góðu einu."
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Óbreytt staða á toppnum í Rocket League Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Sjá meira